Friday, February 16, 2007

Þær hinar

Einu sinni var kona sem fékk augastað á skáldhneigðum dreng sem skrifaði texta sem fengu hjörtu út um allan bæ til að slá hraðar og klökkna. Drengurinn flutti inn til hennar og varð að manni sem skrifaði aldrei um blíðar tilfinningar framar án þess að afsaka sig fyrir það og lýsti aldrei framar gönguferðum í döggvuðu grasi við sólarupprás. Konan hélt lengi að hún hlyti að vera ómerkilegri en hinar konurnar sem orðið höfðu á vegi hans, að hún næði ekki að hræra við strengjum hjarta hans. Hún vissi ekki að þessa glitrandi óhöndlanlegu rómantík er ekki hægt að spinna nema í kringum draumkuntur.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home