Hvarf riddarans
Þegar svallveislan hafði staðið í nokkra daga reis Hjartað einn morguninn úr rekkju sinni, tók sverð sitt og gekk beinustu leið að vistarverum ráðsmannsins. Þar hjó Hjartað höfuðið af öldauðu fólinu. Titrandi læddist Hjartað svo að krýningarsalnum þar sem riddarinn svaf ekki lengur. Hjartað æddi um kastala sinn en fann riddarann hvergi. Meðan Hjartað svaf hafði hann riðið aftur til heitmeyjar sinnar. Í örvæntingu hugleiddi Hjartað að senda flokk blóðhunda á eftir honum en nýfengið frelsið lokkaði meira en löngunin til að vera bundin af riddara í stað ráðsmanns.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home