Tuesday, June 20, 2006

Hjartans langanir

Hjartað getur ekki á sér heilu tekið. Hjartað langar að nudda sér utan í veggi. Hjartað langar að finna hendur á sér allri. Hjartað hlustar á Trent Reznor stynja að hann langi til að taka lostaviðfangið út á deit, út að borða og drekka, hann langi til að twista og öskra því lostaviðfangið sé svo alltof fokkings physical. Hjartað sleikir út um með lokuð augun og tilhugsunin um tungu einhvers riddarans fær hana til að svima pínulítið og geirvörtur Hjartans stingast stífar og rjóðar út í peysuna . Hjartað gæti svarið það að ef það héldi ekki fast í skrifborðið sitt myndi það takast á loft eins og helíumblaðra, svo fullt er það þessari eldfimu kynferðilslegu löngun en helvítis riddararnir eru svo langt í burtu að Hjartað íhugar að fara á barinn í kvöld og draga sætustu stelpuna sem það sér heim með sér, eða heim til hennar þó helst svo undankomuleiðin sé greið, og twista og twista og stynja áður en það springur af losta.

Ég girnist þig svo ákaflega hvíslar Hjartað út í loftið. Ég man þegar þú leiddir mig inn í vistarverur þínar í vorhöllinni. Þú lagðir fingur á munn þér til merkis um að ég skyldi hafa hljótt. Ég settist á rúmið, þú kraupst á hnén fyrir framan mig og lagðir hendur þínar á læri mín, færðir þau í sundur, lyftir pilsunum mínum, horfðir í afhjúpað skaut mér þangað til löngun mín til þín vætti rúmteppið. Þá loksins lagðirðu varir þínar að læri mínu innanverðu, kysstir mig undurmjúkt ofar og ofar og ofar þar til ég fann tungu þína nema við barma mér, sleikja bleiku blautu mýktina, fann þig grípa fast um læri mér og þrýsta þeim í sundur. Og ég hallaði mér aftur í rúminu og fannst eins og ég væri ekkert annað en þessir nokkru blautu fersentimetrar sem tunga þín og varir snertu og eftir að ég hafði sokkið ofan í eilífðina og komið til baka aftur kysstirðu mig á munninn og ég fann mitt eigið salta bragð um leið og ég fann þig sökkva þér inn í mig. Fann fingur þína læsast utan um upphandleggi mér sem þú hélst föstum fyrir ofan höfuð mitt, eins og til að tryggja það að ég kæmist ekki undan.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home